Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
10.5.22

NORRÆNAR SVIÐSLISTIR Á CINARS 2022

Þann 15. september auglýsti Sviðslistamiðstöðin eftir sviðslistafólki og sviðslisthópum til að taka þátt á CINARS í Montreal dagana 7. - 12. nóvember.-

Fagráð Sviðslistamiðstöðvarinnar ásamt Vigdísi Jakobsdóttur listrænum stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík og stjórnarmeðlimi miðstöðvarinnar hafa valið eftirfarandi sviðslistahópa til að kynna verkefni sín á markaðnum:

Stertabenda - Góðan daginn Faggi

Abendshow og MurMur - Club Romantica

Hringleikur - Allra veðra von


Sviðslistamiðstöð veitir ferðastyrk og greiðir þátttökugjaldið á hátíðina.  

Sviðslistamarkaðurinn CINARS heldur sölusýningu á tveggja ára fresti og þykir einn mikilvægasti vettvangur fyrir fagfólk innan sviðslista í Norður Ameríku. Þar leiða sviðslistafólk, skipuleggjendur, kaupendur og framleiðendur saman hesta sína oft með góðum árangri.

Sviðslistamiðstöð Íslands efnir í ár til samstarfs með hinum norrænu kynningarmiðstöðvunum undir nafninu Nordics Combined. Undir merkjum Nordics Combined munum við standa að sameiginlegum Nordic Square kynningarbásum,  Nordic Pulse kynningardagskrá og Nordic Party.  En alls munu 22 sviðslistamenn og hópar frá Norðurlöndunum kynna verk sín.