Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
6.12.22

Ný sirkúslistahátíð á Íslandi - Flipp festival

Flipp festival er ný íslensk sirkurlistahátíð  sem haldin verður dagana 25. og 26. júní nk. í Elliðaárstöð í Elliðaárdal og í Hjólaskautahöllinni á Sævarhöfða. Þema hátíðarinnar er spurningin Er þetta hægt?! Spurningin vísar í algeng viðbrögð áhorfenda við sirkuslistum auk þess sem hún vísar í vangaveltur Hringleiks síðustu ár - hvort hægt sé að halda úti sirkus á Íslandi. Svarið er svo sannarlega já því íslensk sirkussena hefur blómstrað og dafnað á undanförnum árum. Flipp festival mun fagna íslenskri sirkussenu með því að bjóða uppá það besta úr íslenskum sirkus auk nýstárlegra og spennandi erlenda sýninga. Að auki verður boðið uppá sirkussmiðjur fyrir byrjendur og lengra komna.

Kynntu þér dagskrána á tix.is